Fréttir

Þorskur Mynd: Ragnar Th

19.4.2011 : Sumarstörf í boði AVS

AVS rannsóknasjóður í sjávaraútvegi býður nú styrki til að fyrirtæki geti ráðið nýtt starfsfólk til starfa í sumar i afmörkuð verkefni. Lesa nánar
 
Merki AVS

4.1.2011 : AVS flytur til Sauðárkróks

Breytingar urðu hjá AVS sjóðnum nú um áramótin, en sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að flytja umsýslu AVS sjóðsins til Sauðárkróks. Það liggja ekki fyrir upplýsingar hver mun sinna umsýslu sjóðsins, en formaður sjóðsstjórnar mun verða umsækjendum innan handar og svara fyrirspurnum.

Lesa nánar

 
Saltfiskur í fiskborði

30.12.2010 : Gula í saltfiski

Það er að mörgu að hyggja við framleiðslu gæðasaltfisks og mikilvægt að orsakavaldar ýmissa gæðavandamála séu þekktir, svo fyrirbyggja megi tjón við vinnslu. Ljóst er að margir samverkandi þættir við saltfiskframleiðslu geta valdið því að gula komið fram. Meðal þess er efnasamsetning salts, vatns sem notað er við vinnslu og verkun, ástand fisks og efnasamsetning, vinnslubúnaður, áhöld, ílát, vinnslu- og verkunaraðstæður. Samverkandi áhrif þessari þátta eru ekki að fullu ljós þó svo að áhrif ákveðinna stakra þátta, svo sem járns og kopar hafi lengi verið þekktir.

Lesa nánar

 
Grasleppa

28.12.2010 : Kollagen úr grásleppuhvelju

BioPol sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd, Háskólinn á Akureyri, og Seanergy í Færeyjum hafa um nokkur misseri unnið að verkefni er miðar að nýtingu á grásleppuhvelju til kollagenframleiðslu. Grásleppuhvelju (1.700 kg) var safnað á Íslandi og hún send til vinnslu í verksmiðju Seanergy í Færeyjum. Gæði og eiginleikar afurðarinnar voru borin saman við kollagen unnið úr ufsaroði. Afurðin sem framleidd var úr hvelju var dekkri og hafði meiri seigju en kollagen úr ufsaroði.

Lesa nánar

 
Fersk_kufskel

22.12.2010 : Veiði, vinnsla og útflutningur á lifandi kúfskel

Lokið er AVS-verkefninu „veiði, vinnsla og útflutningur á lifandi kúfskel“ sem unnið hefur verið af Ísfélagi Vestmannaeyja hf. á Þórshöfn og Matís ohf. Markmið verkefnisins var að þróa veiðar, vinnslu, geymslu, pakkningar,flutning og markaðssetningu á lifandi kúfskel fyrir Evrópumarkað. Afrakstur verkefnisins hefur að mestu verið í samræmi við væntingar hvað varðar veiði-, vinnslu- og flutningshlutann, en markaðshlutinn hefur enn ekki skilað þeim árangri sem stefnt var að.

Lesa nánar

 
Blaskel

22.12.2010 : Skiptirækt kræklings

Kræklingarækt hefur verið stunduð á tilraunastigi víðsvegar við landið í nokkurn tíma og hafa frumkvöðlar náð tökum á ræktunaraðferðum sem henta fyrir íslenskar aðstæður og fyrstu fyrirtækin eru að hefja uppbyggingu sem byggir á þeirri þróun. Í Evrópu og Kanada er kræklingarækt rótgróin matvælagrein og njóta Íslendingar góðs af því að hafa aðgang að tækni sem þegar hefur verið þróuð til ræktunar og vinnslu kræklings. Aðstæður hér við land eru þó ekki alltaf sambærilegar og hefur þróunarvinna á Íslandi m.a. falist í að aðlaga tækni að íslenskum aðstæðum.

Lesa nánar

 
Þorskur Mynd: Ragnar Th

30.11.2010 : AVS auglýsir eftir umsóknum

Enn á ný auglýsir AVS sjóðurinn eftir umsóknum, en framundan er áttunda starfsár sjóðsins. Að þessu sinni stendur umsækjendum til boða að sækja um í nýjan flokk verkefna, atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum landsins, auk hefðbundinna verkefna.

Lesa nánar

 

 
header1


Útlit síðu:

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.