Fréttir

Úthlutun aflaheimilda til tilrauna í aframeldi á ţorski lokiđ.

3.6.2003

Í annađ sinn hefur sjávarútvegsráđherra úthlutađ aflaheimildum til áframeldis á ţorski, en nú var sá háttur hafđur á ađ AVS rannsóknasjóđur tók á móti umsóknum og skilađi tillögum til ráđherra.

Samkvćmt bráđabirgđaákvćđi nr. XXXI í lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiđa, hefur sjávarútvegsráđherra til sérstakrar ráđstöfunar aflaheimildir sem nema 500 tonnum af óslćgđum ţorski. Ţessum aflaheimildum skal ráđstafađ til tilrauna međ áframeldi á ţorski.

Sjávarútvegsráđherra úthlutađi slíkum aflaheimildum í fyrsta sinn fyrir einu ári síđan. Undirbúningur úthlutunarinnar er nú í höndum nýstofnađs AVS rannsóknasjóđs í sjávarútvegi sem hefur skilađ tillögum um ráđstöfun aflaheimildanna til sjávarútvegsráđherra. Ráđherra hefur ákveđiđ ađ úthlutun á fiskveiđiárinu 2002/2003 verđi í samrćmi viđ framkomnar tillögur.

Eftirlit međ ráđstöfun aflaheimildanna er á hendi Hafrannsóknastofnunarinnar hvađ rannsóknaţáttinn varđar en Fiskistofu hvađ varđar föngun fisksins og framkvćmd eldis.

Eftirtaldir ađilar fengu úthlutađ aflamarki:

Fyrirtćki

Magn úthlutađ

Kví ehf, Vestmannaeyjum

30 tn

Eskja hf, Eskifirđi

50 tn

Sídarvinnslan á Neskaupsstađ

50 tn

Hrađfrystihúsiđ Gunnvör hf, Hnífsdal

50 tn

Guđmundur Runólfsson hf, Grundarfirđi

30 tn

Oddi hf, Patreksfirđi

65 tn

Glađur ehf, Bolungarvík

15 tn

Útgerđarfélag Akureyringa hf

50 tn

Laundey ehf, Sauđárkróki

15 tn

Vopn-fiskur ehf, Vopnafirđi

20 tn

Dúan sf, Siglufirđi

15 tn

Ţórsberg ehf, Tálknafirđi

110 tn

Samtals

500 tn



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header15


Útlit síđu:

 
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíđu eplica.