Fréttir

AVS verkefninu “PAH-efni í reyktum sjávarafurđum” lokiđ

16.11.2004

Nýlega lauk AVS verkefni Helgu Halldórsdóttur ţar sem sett var upp og prófuđ ađferđ til ađ mćla PAH efni í reyktum afurđum. En ţetta verkefni var mastersverkefni hennar og útskrifađist Helga í lok október sl. frá Háskóla Íslands. Ţetta er í fyrsta sinn sem AVS verkefni er unniđ sem mastersverkefni, en nokkur önnur eru í farvatninu.

Ađferđin sem Helga vann međ byggđist á alkalísku niđurbroti, hreinsun á kísilsúlu og mćlingu á HPLC međ flúrskinsnema. Sum PAH efnanna eru krabbameinsvaldar og er benzo[a]pyrene (BaP) taliđ ţeirra skađlegast. 

Hjá Evrópusambandinu hafa veriđ lögđ fram drög ađ reglugerđ varđandi hámarksstyrk ţess í nokkrum fćđutegundum, ţ.á.m. reyktum matvćum.  Lagt er til ađ hámarks leyfilegur styrkur benzo[a]pyrene í reyktu kjöti og fiski sé 5 mg/kg.  Styrkur 15 PAH efna, ţ.m.t. BaP, var mćldur í reyktum íslenskum matvćlum, í 21 sýni sjávarfangs og í 9 sýnum af kjötvörum.  Benzo[a]pyrene mćldist einungis í tveimur sýnum á bilinu 1-2 mg/kg sem er undir vćntanlegu hámarksgildi ES.  Einungis var mćlt í vörum sem eru framleiddar fyrir markađ, innlendan og/eđa erlendan.  Styrkur annara efna var nokkuđ breytilegur á milli sýna. 

Fyrir fiskmetiđ reyndist samanlagđur styrkur ţessara 15 efna lćgstur í ţorskhrognum 30 mg/kg en hćstur í silungi sem reyktur var á hefđbundinn hátt (ekki í vélstýrđum ofni), 1565 mg/kg.  Fyrir kjötvörurnar mćldist minnst af efnunum í  brauđskinku 3 mg/kg en mest í hangiframparti, 597 mg/kg.  Sama munstur var hjá öllum sýnunum varđandi hegđun efnanna.  Léttasta efniđ naphthalene var alltaf í langhćstum styrk, 50-70% af heildarstyrk.  Styrkur efnanna lćkkađi síđan hratt eftir ţví sem ađ efnin urđu ţyngri og mjög lítiđ mćldist af efnum ţyngri en pyrene.  En ţađ eru ţyngri efnin međ 4-7 hringi sem geta veriđ krabbameinsvaldandi.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header12


Útlit síđu:

 
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíđu eplica.