Lágmörkun orkunotkunar í fiskiskipum međ markvissri stýringu
AVS hefur stutt ţróun MAREN orkustjórnunarkerfis fyrir fiskiskip. Kerfiđ safnar saman upplýsingum frá öllum helstu orkunotendum í skipum og greinir notkun orku. Beitt er fullkomnum tölvulíkönum af skipunum til ađ vinna međ gögnin og finna leiđir til ađ spara orku. En ţar sem öll orka um borđ í skipum er fengin međ brennslu jarđefnaeldsneytis ţá er á sama tíma veriđ ađ lágmarka útblástur gróđurhúsalofttegunda um leiđ og ávinningur útgerđar felst í sparnađi viđ eldsneytiskaup.
Lífvirk efni úr íslenskum sjávarlífverum
AVS rannsóknasjóđurinn styrkti verkefni sem hafđi ţađ m.a. ađ markmiđi ađ kanna hvernig best vćri ađ byggja upp ţekkingu og fćrni á sviđ rannsókna og vinnslu lífvirkra efna úr sjó og sjávarfangi á Íslandi.
Er nćgur kraftur í íslenskum sćbjúgum?
Rannsóknastofnun fiskiđnađarins fékk forverkefnisstyrk frá AVS rannsóknasjóđnum til ađ setja upp mćlingar á tveimur lífvirkum efnum í íslensku sjávarfangi. Viđ Íslandsstrendur finnst fjölbreytt lífríki sem í dag er einungis nýtt ađ hluta. Á Rannsóknastofnun fiskiđnađarins er unniđ ađ nokkrum verkefnum ţar sem stefnan er ađ kanna svonefnda lífvirkni (bioactivity) sjávarafurđa en lífvirkni er forsenda ţess ađ mögulegt sé ađ markađssetja vörur sem markfćđi (functional food).
Geymsla og flutningur á lifandi leturhumri
Frumkvöđlasetur Austurlands ehf fékk forverkefnisstyrk frá AVS rannsóknasjóđnum til ađ kanna möguleika á ađ veiđa, geyma og flytja lifandi humar á hagkvćman hátt. Helstu ađferđir viđ veiđar, geymslu og flutning voru skođađar og einnig var kannađ hver stađa lifandi humars er á helstu mörkuđum.

