Vinnsluspá
Sveinn Margeirsson, doktorsnemi viđ Háskóla Íslands og starfsmađur Rannóknastofnunar fiskiđnađarins hefur veriđ ađ vinna í tveimur AVS verkefnum sem miđa ađ ţví ađ tengja saman ţćtti sem hafa áhrif á vinnslunýtingu ţorsks viđ uppruna afla. Sveinn kynnti nýlega doktorsverkefni sitt ,,Vinnsluspá ţorskafla“ fyrir stjórnendum samstarfsfyrirtćkjanna. Verkefniđ felur í sér rannsóknar- og ţróunarvinnu sem hefur ţađ langtímamarkmiđ ađ auka arđsemi ţorskvinnslu.
Stöđugar framfarir í framleiđslu ţorskseiđa.
Hjá Hafrannsóknastofnun á Stađ viđ Grindavík er unniđ ađ ţví ađ framleiđa ţorskseiđi til aleldis í sjókvíum. AVS hefur styrkt verkefniđ og undanfarin ţrjú ár hefur framleiđslan veriđ í kringum 200 ţúsund seiđi á ári. Međ uppskölun á núverandi framleiđni vćri hćgt ađ framleiđa 6 milljónir seiđa á ári í einni 5.000 m2 eldisstöđ en ţađ er efniviđur í meira en 20 ţúsund tonn af ţorski.
Náttúruleg örverudrepandi efni úr fiskum
Međal verkefna sem AVS styrkti áriđ 2003 var verkefniđ náttúruleg örverudrepandi efni úr fiskum. Markmiđ ţessa verkefnis var ađ einangra og greina efni úr ýmsum líffćrum ţorsks sem gćtu haft bakteríudrepandi virkni. Einnig er stefnt ađ ţví ađ ţróa ađferđir til nýtingar ţessara efna í fiskeldi til ađ koma í veg fyrir sýkingar.
Lođnulýsi í salatsósuna
Ađ undanförnu hefur Margrét Bragadóttir matvćlafrćđingur hjá Rannsóknastofnun fiskiđnađarins unniđ ađ ţví ađ kanna mögulega notkun á lođnulýsi til manneldis. Verkefniđ var fjármagnađ af AVS og Rf. Margrét kynnti niđurstöđur sínar nýveriđ á ráđstefnu WEFTA ( West European Fish Technologists Assosiation) í Antwerpen í Belgíu.

