Fréttir

Bólusetning ţorskseiđis
Bólusetning ţorskseiđis

Vetrarsár í laxfiski og ţorski – vonir um bćtt bóluefni

30.1.2006

Vetrarsár (winter ulcers) kallast bakteríusjúkdómur sem herjar á lax, regnbogasilung og ţorsk og orsakast af sýkingu međ Moritella viscosa. Sjúkdómurinn kemur upp í eldisfiski sem alinn er í köldum sjó viđ N-Atlantshaf og einkennist af sárum sem myndast á fiskunum og valda dauđa og umtalsverđu verđmćtatapi.

Lítiđ er vitađ um sýkingarmátt M. viscosa en ţau bóluefni sem framleidd hafa veriđ gegn bakteríunni hafa ekki veitt fullnćgjandi vörn gegn sjúkdómnum.

AVS hefur styrkt verkefni ţar sem unniđ er ađ ţróun bćttra bóluefna gegn vetrarsárum međ einangrun ensíms, svokallađs peptíđasa, sem bakterían framleiđir og seytir út í umhverfi sitt.

Markmiđ verkefnisins eru ađ rannsaka og skilgreina eiginleika peptíđasans, kanna hlutverk hans sem einn af sýkiţáttum bakteríunnar og hugsanlega iđnađarnýtingu hans. Ennfremur ađ kanna hvort bóluefni sem byggja á stökkbreyttum bakteríustofni, sem ekki framleiđir peptíđasann, sé virkara í myndun mótefnavarnar en samsvarandi bóluefni sem byggir á náttúrulegum bakteríustofni.

Unniđ hefur veriđ ađ verkefninu í rúmt ár og hefur tekist ađ einangra peptíđasann, skilgreina virkni hans ađ hluta og rađgreina gen hans. Rannsóknirnar hafa leitt í ljós ađ peptíđasinn er 39 kDa ađ stćrđ, málmháđur og er framleiddur ţegar bakterían er í örum vexti. Hann tilheyrir thermolysin fjölskyldu peptíđasa og hefur mesta samsvörun viđ ađra peptíđasa sem eru ţekktir sýkiţćttir baktería.

Nćstu skref verkefnisins eru ađ útbúa stökkbreyttan M. viscosa bakteríustofn, framleiđa bóluefni sem byggja á honum og prófa í laxi og ţorski. Virkni bóluefnisins verđur borin saman viđ virkni hefđbundinna bóluefna.

Verkefniđ er hluti af doktorsnámi Bryndísar Björnsdóttur sem stundar nám sitt viđ Tilraunastöđ Háskóla Íslands í meinafrćđi ađ Keldum undir leiđsögn Bjarnheiđar K. Guđmundsdóttir, verkefnisstjóra.

Birtar hafa veriđ tvćr greinar í Journal of Fish Diseases 2004 og 2005.

Yfirlit um verkefniđ má sjá á veggspjaldi sem útbúiđ hefur veriđ um verkefniđ.
Tilvísunarnúmer AVS R 006-04

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header6


Útlit síđu:

 
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíđu eplica.