Fréttir
Þorskeldiskarfan – Fundur á Ísafirði
Þessa dagana er verið að hefja vinnu við nokkur ný þorskeldisverkefni og hafa menn valið að setja þessi verkefni saman í eina körfu og samnýta vinnuna sem mest til að hámarka árangurinn. Á miðvikudaginn 21. júní nk. kl 9:30 verður haldinn fundur á Ísafirði þar sem þessi verkefni verða kynnt. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra mun setja fundinn.
AVS styrkir hluta þessara verkefna en AVS rannsóknasjóðurinn hefur stutt markvisst við undirbúning og uppbyggingu þorskeldisins á undanförnum árum.
Nýju verkefnin sem AVS styrkir að þessu sinni eru:
Þróun iðnaðarvædds þorskeldis: Stjórn vaxtar og kynþroska með háþróuðum ljósabúnaði
Verkefnið hefur nýsköpun í þorskeldistækni að meginmarkmiði. Ljós og ljóslota er öflugur umhverfisstýriþáttur bæði hvað varðar vöxt og kynþroska fiska. Með notkun nýrrar gerðar ljósa (cold cathode), sem gefa frá sér eina bylgjulengd sem dreifist betur um vatnsfasann en hefðbundin ljós, verður hægt að hafa áhrif á lykilatriði í þroskunarferli þorsks í sjókvíum. Markmið verkefnisins er að nýta þessa tækni til að ná fram bættum vaxtarhraða og seinkun kynþroska. Ljósastýrð vaxtarhvatning myndi bæta fóðurnýtingu og stytta eldistímann og þar með einnig minnka umhverfisáhrif sjókvíaeldis. Seinkun eða hindrun kynþroska eykur gæði eldisþorsks og samantekið mun verkefnið því stuðla að aukinni hagkvæmni og framlegð í þorskeldi.
Verkefnisstjóri er Dr. Þorleifur Ágústsson hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins á Ísafirði, en verkefnið er unnið í samstarfi við Hafrannsóknastofnun, Hraðfrystihúsið Gunnvör hf, Náttúrustofu Vestfjarða, Hólaskóla og Prókaría ehf.
Vinnsla og gæðastýring á eldisþorski
Markmið verkefnisins er að þróa hefðbundnar fiskvinnsluaðferðir, þ.e. léttsöltun, ferskfiskvinnslu og lausfrystingu, svo þær nýtist fyrir vinnslu á eldisþorski og afurðir úr eldisþorski gefi verðmætar og fjölbreyttar afurðir sem uppfylla gæðakröfur markaðarins.
Verkefnisstjóri er Þórarinn Ólafsson hjá Hraðfrystihúsinu Gunnvör hf, en verkefnið er unnið í samstarfi við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Matra (Iðntæknistofnun)
Fleiri verkefni eru að fara af stað og m.a. nýtt Evrópuverkefni, þeir sem vilja kynna sér þessi verkefni og vinnuna framundan eru kvattir til að mæta á fundinn á Ísafirði.
Sjá einnig frétt á heimasíðu Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins www.rf.is

