Fréttir

Thari
Þari
Þari sóttur á haf út við Grundarfjörð

Þari til matar

24.8.2006

Íslendingar notuðu í gegnum aldirnar þara til matar, mest til að drýgja mjöl og í stað mjöls og sú saga var býsna lífsseig hér á landi að með neyslu þara hafi þeir unnið bug á einum alvarlegasta vaneldissjúkdómi sem á landann herjaði, skyrbjúg. Af þessari arfleifð, þ.e. þaraáti, tíðkast aðeins sölvaát í dag. Þari er því vannýtt auðlind við Ísland, en það kann að vera að breytast, m.a. vegna verkefnis sem AVS styrkti.

Vaxandi áhugi á heilsufæði og aukinn áhugi á austurlenskri matargerð hefur skapað markað fyrir hollar vörur úr þara. Eitt af þeim fjölmörgu verkefnum sem AVS hefur styrkt á undanförnum árum nefnist Sala þara á neytendamarkað og er markmið þess að þróa vörur úr íslenskum þara, kanna hvort markaður sé fyrir þær vörur hér á landi og kanna þá hvort markaðurinn er nægjanlega stór til að það borgi sig að sinna honum. Stofnað hefur verið fyrirtækið Hollusta úr hafinu ehf, sem einnig áformar að athuga möguleika á sölu þarans á erlendan hollustu- og neysluvörumarkað.

Vörur úr þara

Ýmsar afurður úr þara, sem Hollusta úr

hafinu framleiðir og selur á Íslandi

Framleiðsluvörur fyrirtækisins eru hefðbundnar vörur úr þara, en einnig hefur það þróað ýmsar nýjungar, t.d. kryddlegin söl og þykkni “söl puree”. Viðtökur við vörum fyrirtækisins hafa verið ágætar og ýtt undir áframhaldandi starfsemi félagsins á þessu sviði. Eftir að meiri reynsla fæst af markaðsetningu innanlands stefnir félagið að útflutningi á vörum úr þara, eins og fyrr segir.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header5


Útlit síðu:

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.