Fréttir

Stykkishólmur

19.12.2007 : Fjármagn til úthlutunar eykst á næsta ári

AVS rannsóknarsjóðurinn mun á næsta ári hafa meira fjármagn til ráðstöfunar en áður, eða 335 m.kr. fyrir árið 2008. Um er að ræða 100 m.kr. hærri upphæð en fyrir árið 2007. Þá er stefnt að því að AVS sjóðurinn starfi að minnsta kosti til 2014, að því er fram kemur í nýsamþykktum fjárlögum fyrir árið 2008. Jafnhliða hefur verið ákveðið að hækka hámarksstyrki úr 6 m.kr. í 8.m.kr. Styrkir geta þó orðið hærri í sérstökum og viðamiklum öndvegisverkefnum. Lesa nánar
 
Um borð í línuveiðibát

14.12.2007 : Beita úr ódýrara hráefni

Miklar rannsóknir hafa farið fram á eiginleikum pokabeitunnar svokölluðu og nú liggur fyrir mikil þekking á ýmsum samsetningarmöguleikum og veiðni beitunnar.

Lesa nánar

 
Thorskur

11.12.2007 : Ráðstefnan um þorskeldi á Íslandi

Eins og flestum er kunnugt þá var haldin glæsileg ráðstefna um stöðu þorskeldis á Íslandi í lok nóvember s.l.

Lesa nánar

 
Lyftari með lesurum

28.11.2007 : Bætt vinnslustýring

Auknar kröfur um réttar og öruggar upplýsingar um uppruna matvæla hafa leitt til þess að sífellt er leitað nýrra leiða til þess að hafa eftirlit með afla allt frá veiðum til markaðar. AVS hefur styrkt verkefni sem miðar að því að merkja fiskiker með rafrænum hætti en slíkar merkingar gefa aukna möguleika á hagnýtingu rekjanleika. Þá gera þau fyrirtækjum kleift að senda rafrænar upplýsingar til kaupenda um það hvar afurðin er veidd, hvar hún hefur verið verkuð og hvaða leið hún hefur farið á markað.

Lesa nánar

 
Hlyri

26.11.2007 : Frysting á sviljum úr hlýra

Þreifingar með eldi á hlýra hafa staðið yfir í nokkur ár í eldisaðstöðu Hlýra ehf á Neskaupsstað. Markmið fyrirtækisins er að kanna hagkvæmni og möguleika með hlýraeldi á Íslandi.

Lesa nánar

 
Þorskur

23.11.2007 : Ráðstefna um þorskeldi

Ráðstefna sem ber heitið: Stöðumat og stefnumótun fyrir þorskeldi, verður haldin á Grand Hóteli í Reykjavík og 29-30. nóvember n.k.

Lesa nánar

 
Merki AVS

22.11.2007 : Sækja um í AVS

Á næstunni munu birtast auglýsingar frá AVS sjóðnum um umsóknafrestina á næsta ári. Miðað verður við sömu tímamörk og áður, þannig að aðalumsóknafresturinn er 1. febrúar 2008. Lesa nánar
 
Margrét Geirsdóttir

7.11.2007 : Fiskprótein sem fæðubótarefni

Eitt helsta sóknarfæri íslensks sjávarútvegs er að auka verðmæti úr því hráefni sem kemur úr sjó. Með því að vinna fæðubótarefni úr fiski er hægt að auka verðmæti hráefnisins, ekki síst úr vannýttum tegundum, sem eins og stendur eru alla jafnan ekki nýttar til manneldis, eða aukaafurðum og tilfallandi hráefni við hefðbundna vinnslu á matvælum.

Lesa nánar

 
Þorskhnakkar

1.11.2007 : Aukin nýting í flakavinnslu

Með því að sprauta fiskpróteinum í flök má auka nýtingu umtalsvert. Matís hefur á undanförnum árum verið að gera tilraunir með að vinna prótein af hryggjum og öðrum afskurði í bolfiskvinnslu.

Lesa nánar

 
Slóg

25.10.2007 : Hvað á að gera við slógið?

Á undanförnum árum og áratugum hefur verið leitað að viðunandi lausnum við losun á slógi og talsverð áhersla hefur verið lögð á að vinna slógið í nýtanlegar afurðir sem hægt væri að selja.

Lesa nánar

 
Fiskrettur

5.10.2007 : Ýsa var það, heillin!

Í nýrri skýrslu Matís, þar sem birt er samantekt á þeim upplýsingum sem fyrir liggja um neyslu Íslendinga á hinum ýmsu fisktegundum, kemur m.a. fram að Íslendingar elska ýsu öðrum fiskum fremur. Og kemur líklega fáum á óvart! Lesa nánar
 
Saltfiskur í fiskborði

1.10.2007 : Miklar framfarir í saltfiskvinnslu

Heildarnýting fyrir flattan fisk hefur aukist úr um 43% í 58%, með því að breyta og betrumbæta vinnsluferlana og nýta þær nýjungar sem komið hafa fram á síðustu árum.

Lesa nánar

 
Karfi á ís

26.9.2007 : Hvaðan og hvert - rannsóknir á rekjanleika

Í kjölfar alvarlegra áfalla sem matvælaiðnaðurinn varð fyrir í lok síðustu aldar, þá hefur verið unnið markvisst að því að tryggja rekjanleika matvæla þ.e. að upplýsingar sem verða til í ferlinu séu réttar og fylgi vörunni frá upphafi til enda.

Lesa nánar

 
Ufsahnakkar

13.9.2007 : Aukin verðmæti flakavinnslu

Það er að mörgu að hyggja þegar fiskpróteinum er sprautað í flök og flakabita til þess að auka nýtingu. Vinnsluaðferðin og gæði próteinanna geta haft mikil áhrif á geymsluþol og gæði afurðanna. Lesa nánar
 
© Jón Baldur Hlíðberg, www.fauna.is

4.9.2007 : Kítósan í baráttu gegn offitu

Kítósan er efni sem er unnið úr rækjuskel og hefur mest verið notað á fæðubótarmarkaði sem virkt innihaldsefni í megrunarlyf. Lesa nánar
 
Langalaxsíld

30.8.2007 : Í leit að nýjum tegundum

Mikið magn af miðsjávarfiskum finnst víða í úthafinu og við landgrunnskantana við Ísland sem og önnur lönd beggja vegna Atlantsála. Að undanförnu hafa nokkur útgerðarfyrirtæki sameinast um að kanna mögulegar veiðar á laxsíld og öðrum miðsjávartegundum. Lesa nánar
 
ísaður fiskur

28.8.2007 : Aukið verðmæti þorskafla

Eftir að fiskur hefur verið veiddur rýrnar hann um borð í fiskiskipum og tapar ferskleika. Þessi rýrnun minnkar vinnslumögleika og nýtingu á flökum fisksins. Lesa nánar
 
Ýsuhal

23.8.2007 : Flokkun fisks við veiðar

Sýnt hefur verið fram á að hægt er að ná allgóðum árangri í að aðskilja fisktegundur við veiðar með því að nota lagskipta botnvörpu.

Lesa nánar

 
Brimbútur

13.8.2007 : Sæbjúgun á markað í Kína

Um nokkurn tíma hefur verið í gangi tilraunavinnsla og veiðar á sæbjúgum. Það krefst mikillar vinnu og þolinmæði að þróa nýja vöru og koma henni á markað. AVS sjóðurinn hefur tekið þátt í þessari þróun með því að styrkja nokkur sæbjúgnaverkefni. Markaðs- og sölufyrirtækið ICP ehf í Reykjavík hefur unnið að sölu og markaðsetningu sæbjúgna að undanförnu. Lesa nánar
 
Þorskur í eldiskvíum

17.7.2007 : Erfðagreiningar á þorski

Prokaria, líftæknideild Matís (Matvælarannsókir Íslands) hefur tekist að þróa aðferð sem hægt er að nota til erfðagreiningar á þorski. AVS sjóðurinn hefur styrkt þetta verkefni undanfarin ár. Lesa nánar
 
© Jón Baldur Hlíðberg, www.fauna.is

11.7.2007 : Setja þarf meiri kraft í markaðssetningu á rækju

AVS sjóðurinn styrkti á síðasta ári verkefni til að kanna leiðir til að styrkja og efla stöðu kaldsjávarrækju á mörkuðum og hvort grundvöllur væri hjá rækjuframleiðendum við Norður-Atlantshaf að fara út í sameiginlegt markaðsátak.

Lesa nánar

 
Ari Þorsteinsson verkefnisstjóri

28.6.2007 : Aukið verðmæti humarafla

AVS sjóðurinn hefur stutt rannsóknir og þróun við að veiða, vinna og flytja ferskan lifandi humar á markað erlendis. Verkefnið er komið vel á veg og eru fyrstu sendingarnar komnar til kaupenda.

Lesa nánar

 
Hjallur

8.6.2007 : Harðfiskur sem heilsufæði

Íslendingar hafa borðað harðfisk allt frá upphafi byggðar og svo sjálfsagt hefur þótt að menn kynnu að verka harðfisk að engir hafa talið það ómaksins vert að skrá niður hvernig verka skuli harðfisk. Þar af leiðandi eru mjög fáar eldri heimildir til um verkunina, en aftur á móti eru til margar frásagnir um neyslu harðfisks.

Lesa nánar

 
Hrygning þorska

4.6.2007 : Svona fara þorskarnir að

Lokið hefur verið við forverkefnið “Hrygningaratferli og mökunartíðni eldis og villtra þorska”, en sambærilegar rannsóknir hafa ekki verið framkvæmdar áður, hvorki hér á landi né erlendis.

Lesa nánar

 
Sjavarafurðir

1.6.2007 : Íslenskt sjávarfang pottþétt

Í nýrri Matísskýrslu, sem nefnist Verðmæti og öryggi íslenskra sjávarafurða. Áhættusamsetning og áhætturöðun er fjallað um grunnvinnu að áhættumati fyrir þorsk, rækju, karfa, ýsu, grálúðu, síld, ufsa og kúfisk. Þessar tegundir voru kortlagðar m.t.t. hugsanlegrar áhættu varðandi neyslu þeirra og fékkst þannig fram áhættusamsetning þeirra og hálf-magnbundið áhættumat framkvæmt á þeim.

Lesa nánar
 
Þorsklifrur

29.5.2007 : Ástand þorsklifra í eldi metið

Á síðastliðnu ári styrkti AVS sjóðurinn smáverkefni, sem fjallar um leit að nýjum prótein lífmerkjum í þorsklirfum með hjálp próteinmengjagreininga. Viðbrögð þorsklirfa við fóðrun með ufsapeptíðum, sem metin voru út frá mismun í próteintjáningu meðhöndlaðra og ómeðhöndlaðra lirfusýna, voru rannsökuð Lesa nánar
 
Sandhverfu seiði

24.5.2007 : Þróun aðferða við eldi og slátrun sandhverfu

Sandhverfa (Scophthalmus maximus) er að mörgu leyti hentug tegund til eldis sem fer fram við hitastig á bilinu frá 13-20 °C. Eldi á sandhverfu fer að stórum hluta fram í strandeldi í Evrópu þar sem framleiðsla árið 2005 var um 5.000 tonn.

Lesa nánar

 
Fiskrettur

22.5.2007 : Borðum enn meiri fisk

AVS sjóðurinn hefur undanfarin ár styrkt verkefnið “Lífvirk efni í fiski – heilsufarsleg áhrif” þar sem markmiðið er að kanna áhrif fiskneyslu á heilsu. Fyrstu niðurstöður sýna að þorskur auðveldar þeim sem þurfa að léttast að ná markmiðum sínum.

Lesa nánar

 
Cavka kaviar

11.5.2007 : Grásleppuhrognakavíar CAVKA

Nýlega lauk verkefni á markaðssetningu nýs afbrigðis af grásleppukavíar (CAVKA) í helstu störmörkuðum í Finnlandi. Verkefnið var samvinnuverkefni Fram Foods og Landssambands smábátaeiganda og styrkt af AVS rannsóknarsjóðnum.

Lesa nánar

 
Lifandi humar kominn á markað

3.5.2007 : AVS rannsóknasjóður úthlutar 238 milljónum til verkefna í sjávarútvegi

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra sagði á kynningarfundi AVS á Ísafirði í dag að enginn velktist í vafa um þýðingu sjóðsins fyrir sjávarútveginn. “Óhætt er að fullyrða að AVS-sjóðurinn hafi stuðlað að nýsköpun og rannsókna- og þróunarstarfsemi í greininni fyrir rúmlega tvo milljarða króna á síðastliðnum fimm árum og af því erum við afar stolt.”

Lesa nánar

 
Villtir þorskar

30.4.2007 : Áhrif eldis á umhverfi og villta stofna

Lokið er úttekt á stöðu þekkingar er varðar áhrif eldis á umhverfi og villta stofna. Vinnan við þessa úttekt var styrkt af AVS og framkvæmd af sérfræðingum við Háskóla Íslands, Umhverfisstofnun, Veiðimálastofnun, Hafrannsóknastofnunina og Skipulagsstofnun.

Lesa nánar

 
Formflok

13.4.2007 : Fisklím, hvað er nú það?

Upp úr 1980 voru víða framleiddar svokallaðar formkökur úr fiski, þar sem blokkarhráefni var mótað í mismunandi form með hjálp véla. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins nú Matís ohf fékk styrk frá AVS sjóðnum til að kanna áhrif fisklíms á ýmsa þætti við þessa vinnslu.

Lesa nánar

 
Afskuður

11.4.2007 : Fundið fé

Mikill fjárhagslegur og umhverfislegur ávinningur felst í því að nýta fiskhold eða prótein sem tapast í bolfiskvinnslu. Verðmæti geta numið hundruð milljóna króna miðað við það 60 þúsund tonna ársframleiðslu af ferskum og frosnum bolfiskafurðum. Þá fer minna af lífrænum efnum út í umhverfið með því að nýta fiskhold eða prótein í vinnslunni. Lesa nánar
 
Penzim vorur

10.4.2007 : Rannsóknir á Penzim húðáburði

AVS sjóðurinn styrkti verkefni til að kanna hvort Penzim húðáburðurinn hafi læknisfræðilega verkan gagnvart sjúkdómum. Verkefnið var unnið í samstarfi við Möltuháskóla og sjúkrahús á Möltu.

Lesa nánar

 
Þorskur

2.4.2007 : Er heilsan í lagi?

AVS styrkti verkefnið Rannsóknir á bráðasvari hjá þorski, þar sem verið var að rannsaka breytingar sem verða á samsetningu blóðvökva í þorski þegar hann verður fyrir streitu, áverkum eða sjúkdómum.

Lesa nánar

 
Pökkun á ferskum fiski

29.3.2007 : Ný sjálfvirk pökkunarlína

HB Grandi hefur tekið í notkun nýja pökkunarlínu frá Völku ehf. Pökkunarlínan er sérstaklega hönnuð fyrir pökkun á ferskum fiskafurðum með áherslu á hátt sjálfvirknistig, mikla nákvæmni, mikil afköst og góða meðferð hráefnis. AVS styrkti hluta þessa verkefnis. Lesa nánar
 
Tvö ný ker

23.3.2007 : Nýstárlegt fiskiker dregur úr rýrnun fisks

Promens Dalvík áður þekkt sem Sæplast hefur hafið framleiðslu á nýstárlegu fiskikeri sem er léttara en önnur ker og með meira inntaksrúmmál en áður hefur þekkst. Hönnun keranna gerir það að verkum að þau draga úr rýrnun og mari á fiski og bæta gæði hráefnis. Fiskikerið er þróað í samvinnu við Matís ohf. (Matvælarannsóknir Íslands) og FISK Seafood á Sauðárkróki og til verkefnisins fékkst styrkur hjá AVS. Lesa nánar
 
Tilraunakví

20.3.2007 : Aflaheimildir til tilrauna í áframeldi á þorski

Sjávarútvegsráðherra hefur samþykkt tillögur stjórnar AVS rannsóknasjóðs varðandi úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Lesa nánar
 
Einar K. Guðfinnsson

19.3.2007 : Fiskneysla ungs fólks minnkar

Viðamikil rannsókn meðal ungs fólks á aldrinum 17 til 26 ára bendir til að Íslendingar muni borða enn minna af fiski í framtíðinni en þeir gera í dag ef ekkert verður að gert. Ungt fólk borðar fisk sem aðalrétt að meðaltali 1,3 sinnum í viku sem er töluvert undir þeirri fiskneyslu sem Lýðheilsustöð ráðleggur. Fiskneysla þessa aldurshóps hefur dregist verulega saman á undanförnum árum.

Lesa nánar

 
DrBragi_Snyrtivorur

9.3.2007 : Snyrtivörur úr þorski

Þá er komið að því að ensím úr íslenskum þorskum ratar í snyrtivörur fyrir erlendan markað. AVS sjóðurinn hefur stutt rannsókna og þróunarstarf Dr. Jóns Braga Bjarnasonar undanfarin ár.

Lesa nánar

 
Liftaekni_oerverurraekt

8.3.2007 : Lærum af þeim sem hafa náð langt

Síðastliðið ár var unnið verkefni með styrk frá AVS rannsóknarsjóði um stöðu og tækifæri líftækni á Íslandi. Samtök íslenskra líftæknifyrirtækja og AVS unnu verkefnið með sérfræðingunum Steven Dillingham og Rune Nilssen hjá Strategro og Einari Þór Bjarnasyni hjá Intellecta. Greind var staða og möguleikar líftæknigreinarinnar, styrkur hennar og veikleikar. Einnig var skoðað hvernig aðrar þjóðir hafa náð forskoti á þessu sviði.  

Lesa nánar

 
Liftækni

27.2.2007 : Líftækni - staða og tækifræri

Telja má líklegt að Ísland búi yfir ýmsum auðlindum og eiginleikum sem geti orðið grundvöllur að framtíðarþróun í líftækni. AVS sjóðurinn styrkti verkefni til að meta stöðu og tækifræi íslenskra líftæknifyrirtækja.

Lesa nánar

 
Hrognasmyrja

16.2.2007 : Þróun á hrognasmyrju

Fyrir nokkru lauk verkefni í að þróa hrognasmyrju úr ferskum íslenskum loðnu og/eða þorskhrognum. Verkefnið var styrkt af AVS sjóðnum. Hrognasmyrja er þekkt afurð víða um heim en sérstaklega þó í Austur Evrópu og Rússlandi.

Lesa nánar

 
Hreinsitækið frá Þvottatækni

15.2.2007 : Nýtt tæki til þrifa

Þvottatækni ehf á Seyðisfirði hefur á undanförnum árum verið að þróa tæki til þrifa á tönkum og lestum skipa. Á síðastliðnu ári fengu þeir styrk frá AVS sjóðnum til að þróa tækið áfram og koma því fyrir í lest Hoffellsins frá Fáskrúðsfirði.

Lesa nánar

 
Kolmunni

13.2.2007 : Meiri verðmæti úr kolmunna

Kolmunni hefur verið veiddur við Ísland í 30 ár með hléum og hægt er að tala um tvö megin veiðitímabil en það eru árin 1976-1983 og síðar tímabilið sem hófst 1996 og stendur enn. Að langmestu leyti hefur kolminnin farið í bræðslu en með þessu verkefni styrktu af AVS var markmiðið að koma ferskara hráefni til lands, svo framleiða mætti verðmætari afurðir til manneldis.

Lesa nánar

 
AVS könnun

7.2.2007 : Skoðanakönnun AVS

Á síðustu vikum ársins 2006 og þeirri fyrstu á nýju ári var framkvæmd skoðanakönnun meðal viðskiptavina AVS sjóðsins. Það er ekki hægt að segja annað en að niðurstaða könunarinnar sé mjög jákvæð fyrir sjóðinn.

Lesa nánar

 

6.2.2007 : Aldrei fleiri umsóknir

Það er ekki hægt að segja annað en að vinsældir AVS sjóðsins hafi aldrei verið meiri og hafa sjóðnum borist vel yfir 100 umsóknir nú þegar, en frestur til að sækja um stærri rannsókna- og þróunarverkefni rann út 1. febrúar sl.

Lesa nánar

 
AVS fundur

1.2.2007 : AVS til framtíðar

Síðastliðinn föstudag 26. janúar var haldinn opinn fundur um AVS sjóðinn og framtíð hans. Fundarmenn fengu tækifæri til að ræða saman um hvernig sjóðurinn getur best mætt ætlunarverki sínu, þ.e. að auka verðmæti sjávarfangs. Sjávarútvegsráðherra lagði áherslu á í erindi sínu að starfsemi sjóðsins verði tryggð til lengri tíma.

Lesa nánar

 
Bleikja

19.1.2007 : Undirbúningur bleikjuverkefna

Landssamband fiskeldisstöðva fékk stuðning hjá AVS sjóðnum til að undirbúa markaðsátak bleikjuafurða. Nú er þessu forverkefni lokið með skilum á skýrslu verkefnisstjóra, í skýrslunni er að finna ýmis mikilvæg atriði sem vert er að hafa í huga þegar byggja á upp markað fyrir íslensku bleikjuna.

Lesa nánar

 
AVS logo

17.1.2007 : ÍTREKUN - Framtíð AVS - taktu þátt í mótun sjóðsins

AVS sjóðurinn og starfsemi hans hefur verið þróuð í mikilli samvinnu við aðila sjávarútvegsins. Þessir sömu aðilar hafa lýst áhuga sínum á því að halda þátttöku sinni áfram sem er vel. Framundan er skerping markmiða og stefnu sjóðsins og því býður sjóðurinn öllum áhugasömum að koma á fund á Loftleiðum föstudaginn 26. jan. nk. Kl 13-17.

Mikilvægt að skrá sig á fundinn strax í dag 23. jan. 2007

Lesa nánar
 
Thorskshaus

16.1.2007 : Tímabært að sækja um

Vonandi hafa sem flestir orðið varir við auglýsingar frá AVS sjóðnum varðandi fresti til að sækja um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna og þorskkvóta til áframeldis. Allar upplýsingar um styrki og hvernig standa skuli að umsóknum eru að finna á heimasíðu AVS og er mjög mikilvægt að allir fylgi þeim leiðbeiningum sem þar eru að finna.

Lesa nánar

 

 
header14


Útlit síðu:

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.