Fréttir

Ţorsklifrur
Ţorsklifrur
www.larvalbase.org

Ástand ţorsklifra í eldi metiđ

29.5.2007

Á síđastliđnu ári styrkti AVS sjóđurinn smáverkefni, sem fjallar um leit ađ nýjum prótein lífmerkjum í ţorsklirfum međ hjálp próteinmengjagreininga. Viđbrögđ ţorsklirfa viđ fóđrun međ ufsapeptíđum, sem metin voru út frá mismun í próteintjáningu međhöndlađra og ómeđhöndlađra lirfusýna, voru rannsökuđ

Niđurstöđurnar sýndu ađ 53 prótein í međhöndluđum lirfum eru tjáđ í marktćkt (P≤0.05) meira eđa minn magni en í samanburđarhópi. Markmiđ verkefnisins var ađ nota massagreiningar einstakra próteindepla af geljunum til ađ segja fyrir um hvađa prótein ţetta eru. Međ ţví gćtu fengist mikilvćgar upplýsingar um viđbrögđ ţorsklirfa viđ “jákvćđum” umhverfisţáttum á borđ viđ peptíđ. Jafnframt var taliđ líklegt ađ unnt yrđi ađ nota nokkur próteinanna, sem lífmerki til ađ meta ástand lirfa í eldi en í dag er skortur á slíkum próteinum.

Af ţeim 53 deplum sem tjáđir voru í marktćkt minna eđa meira magni voru 23 deplar sem sýndu svipađar breytingar í öllum endurtekningunum og voru ţeir sneiddir út úr tvívíđu rafdráttargeli til massagreininga. Ellefu próteindeplar gáfu peptíđmassaróf sem unnt var ađ nýta viđ leit ađ skilgreindum fiskpróteinum í gagnabönkum og náđist ađ kennigreina 4 ţessara próteina. V-ATPasi, keratín og himnubundiđ flutningsprótein voru tjáđ í auknu magni en α-aktín í minna magni í međhöndluđum lirfum. V-ATPasi er himnubundin ATP-háđ prótónudćla sem er mikilvćg í nćringarefnaupptöku en keratín eru m.a. byggingarefni í fiskrođi.

Almennt hefur lítiđ veriđ birt um próteinmengi sjávarfiska í alţjóđlegum vísindaritum en verkefniđ er hluti af stćrra verkefni sem miđar ađ ţví ađ bćta ţar úr. Rannsóknahópurinn hefur ţegar kynnt hluta niđurstađna úr próteinmengjagreiningum á ţorsklirfum međ fyrirlestrum og veggspjöldum á innlendum og erlendum ráđstefnum. Einnig er bókarkafli um rannsóknirnar í prentun.

Tilvísunarnúmer AVS: S 017-06



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header6


Útlit síđu:

 
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíđu eplica.