Fréttir

Bleikjuhrogn
Bleikjuhrogn

Hreysti er besta sjúkdómsvörnin

25.4.2008

Komið hefur í ljós í forverkefni styrktu af AVS sjóðnum að sumar bleikjufjölskyldur hafa meira þol gegna sjúkdómum en aðrar, og því mikilvægt að nýta slíkar fjölskyldur til kynbóta.

Náttúrulegt hreysti er ákjósanlegasta sjúkdómsvörn fyrir alla eldisfiska jafnt og aðrar lífverur. Hin ört vaxandi þekking á erfðaeiginleikum fiska og sýkla þeirra og samspili hýsils og sýkils í sýkingarferlinu hefur leitt til þess að rannsóknir á arfgengi sjúkdómsþols hafa fengið aukið vægi.

Miklar vonir eru bundnar við þróun bleikjueldis á Íslandi og unnið hefur verið að kynbótum bleikju um árabil. Kýlaveikibróðir er sá smitsjúkdómur sem mestum skaða veldur í íslensku bleikjueldi. Í rannsókninni var kannað næmi sjö mismunandi bleikjufjölskyldna fyrir smiti með kýlaveikibróðurbakteríu.

Niðurstöður sýndu að þrjár fjölskyldur höfðu marktækt meira þol gegn sjúkdómnum en aðrar fjórar fjölskyldur, sem prófaðar voru. Niðurstöðurnar gefa til kynna að vænlegt sé að velja fyrir næmi gegn kýlaveikibróður í bleikjukynbótunum.

Verkefnisstjóri hefur skilað inn skýrslu: Samanburður á næmi bleikju systkinahópa fyrir kýlaveikibróður.

Tilvísunarnúmer AVS: S 004-08



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header6


Útlit síðu:

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.