Fréttir

Vatnsskurðarvél
Vatnskuðarvélin

Skorið með vatni

19.6.2008

Á undanförnum árum hafa ýmsir reynt að leysa snyrtingu fiskflaka með sjálfvirkum búnaði. Skaginn hf hefur unnið með nýjan vélbúnað að undanförnu þar sem markmiðið var að ná tökum á því að skera beingarð úr fiskflökum með vatnsskurðarvél.

Með verkefni þessu var aðalmarkmiðið að ná fram beingarðs- og flakaskurði með sjálfvirkum hætti, enda má með sanni segja að í nútíma fiskvinnslu sé þessi þáttur mjög svo mannaflsfrekur. Það er því hægt að fullyrða að sjálfvirknivæðing, sem þessi muni gjörbylta nútíma fiskvinnslu bæði hvað varðar starfsmannahald sem og gæði og nýtingu afurða.

Vatnsskurðarbúnaðurinn samanstendur af innmötunaraðstöðu, myndgreiningu, servó-hreyfibúnaði, vatnsskurði með spíssum, færiböndum fyrir roðdrátt og vatnsskurð sem og roðdráttarvél. Búnaðurinn vinnur með roðkælibúnaði frá Skaganum hf. Forsenda þess að hægt sé að nota vatnsskurðinn er að flökin hafi áður farið í gegnum roðkælinn og fengið nauðsynlegan stinnleika til að þau haldi formi á meðan skorið er.

Tekist hefur að sanna að verkefnið sé vel framkvæmanlegt, þó svo að á þessum tímapunkti sé það ekki komið svo langt að hægt sé að fara út í framleiðslu á búnaði sem nýtir þessa tækni. Þó tókst að sanna virkni allra helstu meginþátta umræddrar tækni þó svo að samspili þeirra sé enn ábótavant. Mat verkefnishópsins er því að vatnsskurðartækni, til beingarðs- og flakaskurðar, sé mjög raunhæfur kostur og brýn nauðsyn að þróun ljúki á búnaði sem þessum, enda um tæknibyltingu að ræða.

Nánari upplýsingar um verkefnið má fá hjá Ingólfi Árnasyni hjá Skaganum hf.

Tilvísunarnúmer AVS: R 057-05



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header14


Útlit síðu:

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.