Fréttir

Ferskfiskkassar
Ferskfiskkassar

Frauđplast einangrar betur en bylgjuplast

13.1.2009

Í rannsóknum Björns Margeirssonar doktorsnema hjá Matís kom í ljós ađ frauđplastkassar hafa töluvert meira einangrunargildi en sambćrilegir kassar úr bylgjuplasti. Miklu máli skiptir ađ umbúđir verji vöruna fyrir hitasveiflum á leiđ hennar á markađ.

Verkefniđ „Hermun kćliferla“ er styrkt af AVS sjóđnum og er ćtlunin ađ bćta hitastýringu í vinnslu- og flutningaferlum fyrir fiskafurđir. Ađ undanförnu hafa veriđ gerđar umfangsmiklar tilraunir međ tvenns konar pakkningar fyrir fersk fiskflök ţ.e. bylgjuplastkassa annars vegar og frauđplastkassa hinsvegar.

Sett voru fersk flök í báđar gerđirnar ásamt hitasíritum, einnig voru kassarnir međ og án ísmotta. Kćlimotturnar (ísmotturnar) reyndust afar áhrifaríkar til ađ verja fiskflökin fyrir hitaálagi. Jafnframt sýndu niđurstöđur fram á yfirburđi varmaeinangrunar frauđplastkassa umfram bylgjuplastkassa óháđ notkun kćlimotta.

Mismunur einangrunargildis er reyndar enn sýnilegri ţegar kćlimottur eru notađar. Tilraunir međ fullstaflađ bretti af fiskikössum (u.ţ.b. 300 kg á bretti) sýndu ađ međalhitahćkkun flaka getur veriđ tvöföld fyrir bylgjuplastkassa m.v. frauđplastkassa, ađ ţví gefnu ađ loftiđ umhverfis sé 10 °C heitt og á töluverđri hreyfingu.

   

Hitastig-flaka-og-umhverfis
Hitastig flaka og umhverfis. Grćna, granna línan sýnir lofthitann umhverfis pakkningarnar en hinar línurnar hita flaka inni í kössum.

Ađ lokum var sýnt fram á ađ nokkurra klst. sveiflur í lofthita umhverfis heil fiskibretti geta valdiđ mjög ójafnri hitadreifingu innan stćđunnar á brettinu. Í verkefninu "Hermun kćliferla" verđa ţróuđ varmaflutningslíkön, sem nota má til ađ meta áhrif ţess hitaálags, sem pakkađar fiskafurđir verđa óhjákvćmilega fyrir í flutningaferlum. Einnig verđa skođađir möguleikar á endurhönnun á pakkninga til ađ tryggja betri vöru.

Nálgast má hér skýrslu verkefnisstjóra: Thermal Performance of Corrugated Plastic boxes and Expanded Polystyrene Boxes

Tilvísunarnúmer AVS: R 037-08



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header15


Útlit síđu:

 
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíđu eplica.