Fréttir

Þurrkaður kolmunni
Þurrkaður kolmunni

Þurrkaður kolmunni

28.5.2009

Hjá Norlandia á Ólafsfirði hefur verið unnið að tilraunavinnslu á þurrkuðum kolmunna og hefur þeim tekist að sýna fram á að framleiða má fyrsta flokks vöru til manneldis úr frystu hráefni.

Í verkefninu sem AVS sjóðurinn styrkti voru gerðar tilraunir með þrenns konar afurður. Í fyrsta lagi var kolmunninn þurrkaður heill og óslægður, sem er hentugasta aðferðin vinnslulega séð. En það komu upp vandamál vegna fitu í lifur vegna þess að fitan smitaðist í umbúðir og varan var óhæf til manneldis og einnig sem gæludýrafóður. Í öðru lagi var gerð tilraun með að þurrka slægðan fisk með haus, en útlit vörunnar þótti ekki spennandi svo þriðja leiðin var valin og brugðið á það ráð að hausa og slægja kolmunnann fyrir þurrkun og þá varð til afurð sem viðskiptavinir Norlandia eru tilbúnir að vinna með áfram hvort sem um er að ræða til manneldis eða sem nammi fyrir gæludýr.

Nánari upplýsingar gefur Ásgeir L. Ásgeirsson hjá Norlandia ehf á Ólafsfirði.

Tilvísunarnúmer AVS: R 009-07



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header6


Útlit síðu:

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.