Fréttir
Hringormar í ţorski í áframeldi
Frá um mitt ár 2004 hefur veriđ fylgst međ hringormum og öđrum líffrćđilegum ţáttum hjá ţorski í áframeldi í Skutulsfirđi, og hefur m.a. komiđ í ljós ađ selormar eru greinilega mjög langlífir.
Frá ţví ţetta AVS verkefni hófst hefur veriđ byrjađ á ţremur eldislotum og er tveimur ţeirra lokiđ. Fyrsta lotan stóđ yfir í 565 daga, sú nćsta í 929 daga, úr ţriđju lotunni sem ekki er lokiđ voru tekin sýni eftir 719 daga. Bráđabirgđaniđurstöđur benda til ţess ađ ţorskar 1,6 faldi lengd sína og 6,1 faldi ţyngd sína á 929 dögum.
Ţorskur međ mikinn fjölda hringorma (2,2 ormar/kg) í upphafi eldis verđur svo til hringormalaus ađ loknu 929 daga kvíaeldi (0,7 ormar/kg) ţetta kemur til ađ mestu leyti vegna aukningu ţyngdar á hringormafríu fóđri. Um 30% af selorminum drepst í ţorskinum á hverju ári og greinilegt ađ selormurinn er langlífur. Eftir tvö ár er um 50% selormanna dauđir og ađ loknum 6,7 árum er 90% ţeirra dauđir.
Verkefnisstjóri verkefnisins er Erlingur Hauksson hjá Rannsjá, en hann vinnur verkefniđ í samvinnu viđ Glađ ehf og Hafrannsóknastofnun.
Tilvísunarnúmer AVS: R 065-06

