Fréttir

Husavikurhofn
Húsavíkurhöfn

Sjávarútvegsráđstefnan ehf

29.1.2010

Ákveđiđ hefur veriđ ađ setja á stofn félag til ađ halda ráđstefnur um mikilvćg viđfangsefni á sviđi sjávarútvegs. Félagiđ á ekki ađ vera hagsmunasamtök einstakra hópa og á ekki ađ vinna ađ hagsmunagćslu, heldur tryggja uppbyggilega umrćđu og vera hvetjandi til góđra verka.

Ákveđiđ hefur veriđ ađ stofna Sjávarútvegsráđstefnan ehf. Stofnfundur félagsins verđur haldinn ţann 19. febrúar klukkan 15:30 í Verbúđinni – Víkin, Sjóminjasafninu í Reykjavík, Grandagarđi 8, 101 Reykjavík. Allir ţeir sem láta sig málefni sjávarútvegsins varđa eru hvattir til ađ gerast hluthafar. Félagiđ er ekki hagsmunasamtök einstakra hópa og vinnur ekki ađ hagsmunagćslu. Hlutverk félagsins er ađ halda árlega sjávarútvegsráđstefnu og er tilgangur hennar ađ:

  • stuđla ađ faglegri og frćđandi umfjöllun um sjávarútveg og
  • vera vettvangur fyrir samskipti allra ţeirra sem koma ađ sjávarútvegi á Íslandi.

Hugmyndin ađ sjávarútvegsráđstefnunni er ađ skapa samskiptavettvang allra ţeirra sem koma ađ sjávarútvegi á Íslandi. Innan ţessa hóps eru ţeir sem starfa viđ veiđar, eldi, frumvinnslu, framhaldsvinnslu, sölu og markađssetningu, ţjónustu og rannsóknir og ţróun, einnig opinberir ađilar, kennarar og nemendur, fjölmiđlar og ađrir áhugamenn. Í dag eru ýmsar ráđstefnur og fundir innan sjávarútvegsins en ţá yfirleitt tengt einstökum félögum, samtökum eđa efni.

Markmiđ sjávarútvegsráđstefnunnar er ađ ná saman á einum stađ ţversniđi af greininni til ađ vinna ađ framförum og sókn. Sjávarútvegsráđstefnan er vettvangur ţar sem menn hittast, styrkja sambönd og samstarf í greininni. Á ráđstefnunni er fjallađ um mikilvćg viđfangsefni á sviđi sjávarútvegs og vonast er ađ hún verđi uppspretta hugmynda og hvatning til góđra verka.

Allir er láta sig málefni sjávarútvegsins varđa geta tekiđ ţátt í stofnun félagsins og mćtt á stofnfund. Ţeir sem hafa áhuga ađ vera hluthafar en geta ekki mćtt vinsamlega sendiđ tölvupóst til Guđbrands Sigurđssonar (gs@nyland.is) eđa Valdimars Inga Gunnarssonar (valdimar@sjavarutvegur.is)

Sjávarútvegsráđstefnan 2010

Fyrsta sjávarútvegsráđstefnan verđur haldin 6.–7. september 2010 á Grand Hótel í Reykjavík. Ráđstefnan verđur međ vefinn www.sjavarutvegsradstefnan.is ţar sem hćgt verđur ađ sćkja dagskrá og ađrar upplýsingar í framtíđinni. Til ađ tryggja ađ sem flestir geti sótt ráđstefnuna verđa fengnir ađilar til ađ styrkja ráđstefnuna međ ađ markmiđi ađ halda ţátttökugjaldi í hófi.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header20


Útlit síđu:

 
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíđu eplica.