Fréttir

Eldisţorskur
Ţorskur

Heilbrigđur ţorskur

30.3.2010

Áföll vegna sýkingar í ţorskeldi eru algeng og aukin ţekking á ónćmiskerfi ţorsksins er eitt af áherslu sviđum framtíđarinnar. Ţorskur myndar ekki hefđbundin mótefna svör og rannsóknir á náttúrulega ónćmiskerfinu (e. innate immunity) eru ţar af leiđandi sérstaklega mikilvćgar í ţorski til ţess ađ finna leiđir til ađ verja fiskinn gegn sjúkdómum.

Markmiđ verkefnisins var ađ greina tjáningu bakteríudrepandi peptíđa, sem eru partur náttúrulega ónćmiskerfisinu, í heilbrigđum og sýktum ţorski, en jafnframt á mismunandi ţroskastigum. Í verkefninu var ţorskur sýktur međ bakteríunni sem veldur kýlaveikibróđur og magn bakteríudrepandi peptíđa af gerđ cathelicidin var mćlt í mismunandi vefum. Rannsóknir sýndu ađ cathelicidin magn jókst viđ sýkingu sem bendir til ţess ađ bakteríudrepandi peptíđ hafa hlutverk í ónćmiskerfi ţorsks. Magn cathelicidin mRNA var líka athugađ í ţorsklirfum og niđurstöđur gefa til kynna ađ međfćdda ónćmiskerfi ţorsksins er virkt snemma í ţroskun fisksins og svara örvun međ aukinni tjáningu á bakteríudrepandi peptíđum.

Niđurstöđur úr ţessu verkefni mynda grundvöll fyrir áframhaldandi rannsóknir á hlutverki og virkni cathelicidina og vonir standa til ađ í framtíđinni megi nýta peptíđin sem forvarnir gegn sjúkdómum í fiskeldi.

Skýrsla verkefnisstjóra: Heilbrigđur ţorskur - Greining á náttúrulegum varnarefnum í ţorski

Tilvísunarnúmer AVS: S 031-08



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header18


Útlit síđu:

 
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíđu eplica.