Fréttir
Lifandi humar á markað
Sýnt hefur verið fram á að mögulegt er að flytja út lifandi trollveiddan leturhumar frá Hornafirði til Suður-Evrópu. Mjög góður árangur náðist við að halda humri lifandi um borð í veiðiskipum. Búast má við allt að þreföldu verði miðað við frosinn humar.
Nýlokið er rannsóknaverkefni á Hornafirði sem heitir Veiðar og vinnsla á lifandi og ferskum leturhumri. Verkefnið er samstarfsverkefni Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf., Skinneyjar Þinganes h/f., Matís ohf., Hafrannsóknastofnunar og Promens h/f á Dalvík.
AVS rannsóknasjóður hefur styrkt verkefnið fjárhagslega en Frumkvöðlasetur Austurlands ehf. hefur séð um verkefnisstjórnun.
Markmið verkefnisins var að rannsaka leiðir til að auka tekjur og arðsemi humarveiða á íslandi með því að veiða, framleiða og selja ferskan og lifandi leturhumar.
Verkefnið spannar alla dreifikeðju vörunar eða veiðar, vinnslu, geymslu, dreifingu og markaðssetningu á lifandi leturhumri.
Í verkefninu hefur verði sýnt fram á að mögulegt er að flytja út lifandi trollveiddan leturhumar frá Hornafirði til suður-Evrópu. Vegna stærðarsamsetningar og gæða verður þó aldrei hægt að flytja út sem lifandi humar nema brot af þeim afla sem kemur í trollið á hverjum tíma. Eftir að hafa kynnt sér tilraunir og vinnslur sem byggja á lifandi útflutningi á trollveiddum humri bæði í Skotlandi og Danmörku liggur ljóst fyrir að enginn ræður yfir þekkingu sem tryggir langtímageymslu á trollveiddum humri. Í flestum tilvikum miða aðilar við að koma humri í útflutning á 96 klst eftir að hann veiðist í trollið.
Sé markmiðið að geyma humar í lengri tíma er æskilegt að beita gildruveiðum. Gildruveiðar hafa marga kosti fram yfir trollveiðar þegar kemur að lifandi útflutningi. Humarinn verður fyrir litlu hnjaski og streitu í gildrunum sem minnkar áverka og eykur hæfni þeirra til lifunar. Humarinn sem veiðist í gildrunnar er stærri og með minni stærðardreifingu samanborið við trollveiddan humar. Þar sem humarinn kemur jafnt og þétt um borð í skipið líður mjög stuttur tími þangað til að hann er aftur kominn í sírennsli af sjó og búið er að stærðarflokka hann. Verkefnið kom að gildruveiðum á leturhumri í Háfadýpi. Þær veiðar voru samstarfsverkefni útgerða sem starfa innan sérstaks humarklasa á Suðurlandi. Klasinn var sérstaklega stofnaður til að vinna að verðmætaaukningu við humarveiðar á Íslandi. Þar skiptast aðilar á rannsóknarniðurstöðum og samstilla rannsóknir eins og þess til að lágmarka kostnað við þær og hámarka líkur á árangri. Niðurstöður eru mjög lofandi og vinna nú aðilar innan humarklasans sameiginlega að því að fara yfir rekstrar og útgerðarforsendur á gildrubátum.
Mjög góður árangur náðist við að halda humri lifandi um borð í skipum í verkefninu. Sett voru upp sírennsliskerfi um borð í bátunum auk þess sem humrar voru flokkaðir eftir sjónrænum gæðaþáttum sem skilgreindir voru í verkefninu. Við flokkunina voru humrar svo aðskildir annað hvort í skúffukerfi eða með lóðréttum geymslukössum. Þegar búið var að þjálfa sjómenn til að sinna flokkuninni að natni náðist að tryggja fullkomna lifun við flutning í land.
![]() |
![]() |
|
Guðmundur H. Gunnarsson, verkefnisstjóri hjá Matís við humarhótelið á Höfn. |
Lifandi humar í keri á sjávarútvegssýningunni í Brussel |
Við geymslutilraunir í Humarhóteli kom í ljós að afföll á 96 klst. var um 8% samanborið við 23% í dönskum tilraunum. Í yfirgnæfandi tilvika mátti við nánari skoðun finna áverka á dauðum humrum sem líklegir eru til að draga þá til dauða. Þetta lýsir en frekar hversu nákvæm flokkunin á sjó þarf að vera ef það á að nýta trollveiðar til útflutnings á lifandi humri. Veruleg vinna fór í uppsetningu og stöðlun á humarhótelinu þar sem sjógæði voru mæld nákvæmlega. Þetta bendir til þess að trollveiddur humar sé of illa farinn til að það megi vænta þess að hann nái að jafna sig eftir veiðarnar.
Farið var ítarlega yfir mögulegar pökkunaraðferðir á leturhumri fyrir útflutning. Eftir að hafa kynnt okkur bæði pökkun lárétt í kassa (með heimsókn í pökkunarstöð í Kyle í Skotlandi) og pökkun lóðrétt í kassa (með því að panta lifandi humar frá Skotlandi til Hornafjarðar) var ákveðið að nota fyrri möguleikann. Eftir að ljóst var að humarinn lifði nógi lengi í pakkningum til að komast til Evrópu var hafist handa við fyrstu útflutningstilraunir. Í upphafi voru humrar sendir til samstarfsaðila í Brussel sem staðfesti lifun og gæði við móttöku. Í framhaldinu var fluttur út humar sem hafður var til sýnis á sjávarútvegssýningu í Brussel 2007. Þar var humarinn hafður lifandi í keri í 3 sólarhringa eftir flutning. Humarinn vakti mikla athygli sýningargesta. Gæði humarsins voru mikil, hann sýndi góða lífsmörk og litur hélst vel.
Eftir markaðsgreiningu kom í ljós að u.þ.b. þrefalt hærra verð fæst fyrir ferskan humar samanborið við frosinn. Á síðustu misserum hefur afurðaferð bæði á frosnum og freskum humri lækkað nokkuð. Það kemur þó í ljós að hlutfallslega hefur ferski humarinn lækkað mun minna en sá frosni. Ásættanleg verð fengust fyrir tilraunasendingar á lifandi humri til Belgíu, Spánar og Ítalíu. Humarinn var bæði seldur á markaði og beint til aðila í gegnum samstarfsaðila Skinney Þinganes í Brussel.
Í verkefninu hefur verið sýnt fram á að hægt er að flytja út lifandi humar til Evrópu frá Hornafirði. Skilgreindir hafa verið verkferlar fyrir öll stig vinnslunnar og staðfest að áætluð verð fást fyrir afurðina. Lifun í ferlunum er betri en í sambærilegum verkefnum í Danmörku. Þannig hefur verið lagður þekkingarlegur grunnur fyrir frekari umsvif íslenskra fyrirtækja við útflutning á lifandi og ferskum leturhumri. En telja má að slíkur útflutningur sé sérstaklega áhugaverður ef tekst að koma á gildruveiðum á leturhumri sem geta staðið undir sér.
Tilvísunarnúmer AVS: R 037-05



