Fréttir
Úthlutun 2010 liggur fyrir
Fjöldi umsókna til AVS sjóđsins var svipađur í ár og 2009 sem var metár og greinilegt ađ ţađ er mikil hugmyndavinna í gangi um allt land. Alls bárust um 160 umsóknir ţar sem sótt var um ríflega 800 m.kr. og greinilegt ađ ţađ yrđi mjög vandasamt verk ađ velja umsóknir sem styrkja ćtti.
Sjóđurinn hafđi um 9% minna til ráđstöfunar áriđ 2010 miđađ viđ síđasta ár og kom ţađ niđur á fjölda styrktra verkefna, mörg verkefni eru ađ fá töluvert minna úthlutađ en sótt var um ţannig ađ ţađ liggur fyrir ađ verkefnisstjórar ţurfa ađ gera meira fyrir minna.
Eins og undanfarin ár ţá hefur sjóđurinn rađađ umsóknum niđur á fjóra mismunandi faghópa ţađ er fiskeldi, líftćkni, markađsverkefni og verkefni sem tengjast veiđum og vinnslu. Skipting milli faghópa hefur veriđ nokkuđ svipuđ milli ára fram til ţessa, en nú gerđist ţađ ađ markađsumsóknum fjölgađi umtalsvert. Sjóđurinn hefur líka veriđ ađ kalla eftir umsóknum sem eiga styttra í ađ skila verđmćtum.
Langflest verkefnin eru eins og áđur samstarfsverkefni nokkurra ađila og er mjög algengt ađ fyrirtćkin séu ađ vinna međ rannsóknafyrirtćkjum og háskólum ađ ýmsum lausnum til ađ auka verđmćti sjávarfangs.
Hér má sjá lista styrktra verkefna 2010
Innan fárra daga verđa nánari upplýsingar um ţessi verkefni komin á heimasíđu sjóđsins.

