Fréttir
Eldisţéttleiki og fóđrunartíđni hafa mikil áhrif á vöxt ţorskseiđa
Nýleg rannsókn sýnir ađ ţéttleiki ţorskseiđa í eldi og fóđurtíđni hefur mikil áhrif á vöxt seiđanna. Ef ekki er fylgst vel međ ţéttleika ungseiđa og ţau fóđruđ nógu títt má búast viđ töluvert lakari vexti og meiri afföllum vegna sjálfsráns.
Verkefniđ “Áhrif fóđrunartíđni og ţéttleika á ung ţorskseiđi” sem AVS sjóđurinn styrkti áriđ 2009, var framkvćmt í eldisađstöđu Háskólans á Hólum í Verinu á Sauđárkróki í samstarfi Hólaskóla og Rannsókna- og frćđaseturs Háskóla Íslands á Vestfjörđum.
Framkvćmd var ein tilraun ţar sem könnuđ voru áhrif mismunandi eldisţéttleika (2500 eđa 5000 fiskar á m3) og fóđurdreifingar í tíma (fóđrun yfir 2 eđa 16 klst. á sólarhring) á vöxt, stćrđarbreytileika og tíđni sjálfráns (cannibalism) ţorsks yfir 40 daga tímabil á fyrsta sumri eftir myndbreytingu úr lirfu í seiđi.
Ţessi rannsókn sýndi ađ eldisţéttleiki og fóđrunartíđni hafa mikil áhrif á vöxt ţorskseiđa. Í lok tilraunar voru seiđi ađ jafnađi 18.7% ţyngri í lágum ţéttleika (2.042 g) en í háum ţéttleika (1.721 g) og 18.9% ţyngri ţar sem fóđur var dreift í tíma (2.044 g) heldur en ţegar sama fóđurmagn barst í eldisker á stuttum tíma á hverjum degi (1.719 g). Samanlögđ áhrif ţéttleika og fóđrunartíđni voru ţví umtalsverđ; fiskar sem aldir voru viđ lágan ţéttleika og fóđur sem var dreift í tíma, voru 40% ţyngri í lok tilraunar en fiskar sem aldir voru viđ háan ţéttleika og hnappdreift fóđur.
Lifun ţorskseiđa á međan á tilrauninni stóđ var 88.2% en afföll vegna sjálfráns, ţar sem stćrri seiđi éta ţau minni sömu tegundar, voru ađ jafnađi mun meiri í háum ţéttleika (4.9%) en í lágum ţéttleika (1.5%).
Ţessi tilraun sýnir mikilvćgi ţess ađ ala ung ţorskseiđi viđ kjörţéttleika og ađ fóđrun á ţessu lífsstigi sé ekki einungis bundin viđ stutt tímabil á hverjum degi. Ef ekki er fylgst vel međ ţéttleika ungseiđa og ţau fóđruđ nógu títt, má búast viđ töluvert lakari vexti (allt ađ 40%) og meiri afföllum vegna sjálfráns. Saman geta ţessir umhverfisţćttir ţví haft umtalsverđ áhrif á kostnađ viđ seiđaeldi og velferđ eldisfiska.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Óli Steingrímsson hjá Fiskeldis- og fiskalíffrćđideild Háskólans á Hólum.
Skýrsla verkefnisins: Áhrif fóđurtíđni og ţéttleika á ung ţorskseiđi
Tilvísunarnúmer AVS: R 072-09

