Fréttir
Með skipum í stað flugvéla
Með tilraunum hefur verið sýnt fram á að hægt er að lengja geymsluþol ferskra þorskhnakka um allt 4-5 daga ef rétt er staðið að kælingu við framleiðslu og flutning vörunnar á markað.
Flutningur með flugi er dýr flutningsmáti auk þess sem sótspor þess háttar flutninga er mun stærra en með skipi. En aftur á móti eru flugflutningar frá landinu mun tíðari og geta þarf af leiðandi þjónað viðskiptavinum betur hvað varðar afhendingar en skipaflutningur.
Í AVS verkefninu „Hermun kæliferla“ hafa verið framkvæmdar margar áhugaverðar tilraunir þar sem kortlagðir hafa verið hitaferlar mismunandi flutninga. Í einni tilrauninni var tekið mið af fyrirliggjandi niðurstöðum hitakortlagningar kælikeðja þegar hitaferlar fyrir flug- og sjóflutning voru hannaðir fyrir tilraunirnar. Hitastýrðir kæliklefar Matís komu að góðum notum eins og svo oft áður. Eftir flutning frá framleiðanda á norðanverðu Íslandi til Matís í Reykjavík varð flugfiskurinn fyrir tveimur tiltölulega vægum hitasveiflum (um 9 °C í 9 klst. og um 13 °C í 4 klst. nokkrum klst. síðar) og við tók nokkurra daga geymsla við 1 °C. Gámafiskurinn var aftur á móti geymdur við -1 °C, sem er raunhæfur möguleiki við gámaflutninga með skipum, frá komu til Matís í Reykjavík. Vert er að geta þess að hitaálag í flugflutningi getur orðið umtalsvert meira en fyrrgreindur flughitaferill segir til um skv. mælingum Matís.
Notast var við hitamælingar, skynmat, efna- og örverumælingar til að bera flutningsmátana tvo saman.
Hermun flug- og sjóflutnings (hitasveiflur og stöðugur hiti) leiddi í ljós að fyrir vel forkælda þorskhnakka má vænta um fjögurra daga lengra ferskleikatímabils og um fimm daga lengra geymsluþols í vel hitastýrðum sjóflutningi miðað við dæmigerðan flugflutningsferil. Þar sem sjóflutningur frá Íslandi tekur oft um fjórum til fimm dögum lengri tíma en flugflutningur (háð m.a. vikudegi og staðsetningu vinnslunnar) sýnir þetta að sjóflutningur er raunhæfur möguleiki fyrir íslenska ferskfiskframleiðendur. Þetta byggir þó á því að hitastýring í gámum sé eins og best verður á kosið. Samanburður á hitastýringu í mismunandi gámategundum er einmitt eitt af viðfangsefnum verkefnisins „Hermun kæliferla“.
Nánari upplýsingar er að finna í skýrslunni: Effect of improved design of wholesale EPS fish boxes on thermal insulation and storage life of cod loins – simulation of air and sea transport
Tilvísunarnúmer AVS: R 037-08

