Fréttir

Þorskur Mynd: Ragnar Th
Thorskportrett

AVS auglýsir eftir umsóknum

30.11.2010

Enn á ný auglýsir AVS sjóðurinn eftir umsóknum, en framundan er áttunda starfsár sjóðsins. Að þessu sinni stendur umsækjendum til boða að sækja um í nýjan flokk verkefna, atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum landsins, auk hefðbundinna verkefna.

Eins og kemur fram í auglýsingu sjóðsins þá stendur umsækjendum til boða að senda inn umsóknir þar sem sérstök áhersla er lögð á atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum landsins. Þarna verður fyrst og fremst lögð áhersla á styttri verkefni sem eiga að vinnast á innan við 12 mánuðum og geta skapað ný störf og aukin verðmæti í sjávarbyggðum vítt og breitt um landið. AVS sjóðurinn er tilbúinn til að leggja fram að hámarki 50% af kostnaði verkefnanna og verður hámarksstyrkur 3 m.kr.

Mikilvægt er að leggja fram vel rökstuddar og arðvænlegar hugmyndir að verkefnum sem geta aukið fjölbreytni og eflt atvinnu og verðmætasköpun.

Lykilhugtök í þessum nýja verkefnaflokki AVS eru m.a. matarferðamennska, hönnun, nýtt hráefni, sjálfbærni, uppruni, ferðaþjónusta, vöruþróun, fullvinnsla, vörur í smásölu eða á borð neytenda, nýjar tegundir, smáframleiðsla o.fl. Sérstök umsóknaeyðublöð fyrir þennan flokk umsókna eru að finna á heimasíðu sjóðsins, sjá nánar

AVS sjóðurinn býður áfram upp á hefðbundin verkefni með sömu áherslum og áður, en því miður þá verður framlag til sjóðsins skorið umtalsvert niður þannig að ekki verður mögulegt að styðja jafnmörg verkefni á næsta ári og undanfarin ár. Umsóknareyðublöð eru með svipuðu sniði og síðast, sjá nánar

Umsóknafrestur er þriðjudagurinn 1. febrúar 2011


Auglýsing 2011

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header9


Útlit síðu:

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.