Fréttir
AVS flytur til Sauðárkróks
Breytingar urðu hjá AVS sjóðnum nú um áramótin, en sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að flytja umsýslu AVS sjóðsins til Sauðárkróks. Það liggja ekki fyrir upplýsingar hver mun sinna umsýslu sjóðsins, en formaður sjóðsstjórnar mun verða umsækjendum innan handar og svara fyrirspurnum.
Samhliða fjölbreyttum störfum hjá Matís ohf. hefur undirritaður séð um daglega umsýslu AVS sjóðsins í hlutastarfi síðastliðin átta ár eða frá því að hann tók til starfa í byrjun ársins 2003.
Starfsemi AVS sjóðsins fór strax á gott flug og var gengið í smiðju innlendra og erlendra sjóða til að skipuleggja starfsemina. Strax í upphafi var lögð mikil áhersla á að sjóðurinn væri faglegur samkeppnissjóður og að gagnsæi væri í starfsemi hans auk þess sem byggt var upp gott samstarf við sjávarútveginn og tengdar greinar.
Allar upplýsingar um starfsemina er að finna á heimasíðu sjóðsins, þar er að finna m.a. efni um öll verkefni sem styrkt hafa verið frá upphafi auk upplýsinga um afrakstur flestra þeirra, en það hefur alla tíð verið kappsmál undirritaðs að allir styrkþegar skili upplýsingum um afrakstur styrktra verkefna.
Umsóknir til sjóðsins eru komnar vel á níunda hundraðið og styrkir frá upphafi eru ríflega fimmhundruð þannig að umsvif AVS sjóðsins hafa verið umtalsverð á liðnum árum. Mörg verkefni hafa skilað miklum verðmætum og nýjungum fyrir íslenskan sjávarútveg en það er ekki réttlætanlegt að valin séu einhver örfá dæmi í þessu samhengi, en mönnum er bent á að fletta í gegnum verkefnasíður sjóðsins, kynna sér skýrslur og greinar ásamt ársyfirlitum sjóðsins undanfarin ár.
Það hefur vissulega verið spennandi að vinna fyrir sjóðinn og ekki tilhlýðilegt annað en að þakka öllum fyrir samstarfið og í því samhengi vil ég sérstaklega þakka verkefnisstjórum faghópanna, sem hafa unnið með mér frá upphafi fyrir ánægjulegt samstarf. Öllum viðskiptavinum AVS sjóðsins þakka ég skemmtileg samskipti og vona að þeir erfi það ekki við mig þó ég hafi stundum þurft að byrsta mig í tölvupóstum við eftirrekstur verkefnaskila.
Það liggja ekki fyrir upplýsingar um hver tekur við keflinu að öðru leyti en því að viðkomandi mun hafa aðsetur á Sauðárkróki, þangað til það liggur fyrir mun Pétur Bjarnason formaður stjórnar AVS sjóðsins svara fyrirspurnum í síma 894 0333, en mínum störfum fyrir AVS sjóðinn er lokið og mun ég snúa mér að öðrum spennandi verkefnum innan veggja Matís ohf.
Bestu óskir til allra um gleðilegt ár og gangi ykkur vel með umsóknaskrifin.
Páll Gunnar Pálsson

