Rannsóknaverkefni
Rannsóknaverkefni
Ef þið hafið spurningar hafið þá samband í síma 422 5102 eða avs@avs.is
Eyðublað 2011 -- vinsamlegast skila umsókn í word-skjali EKKI pdf.
Nú þurfa allir þátttakendur að undirrita umsóknir
Átaksverkefni
AVS sjóðurinn leggur nú áherslu á styttri verkefni og munu umsóknir þar sem verkefni eru til skemmri tíma en 12-18 mánaða að öllu jöfnu njóta forgangs. Lögð verður mikil áhersla á verkefni sem skila verðmætum og störfum fyrir íslenskan sjávarútveg.
|
Sjá nánar |
|
Sjá nánar |
|
Sjá nánar |
AVS sjóðurinn er tilbúinn til að greiða allt að 50% af kostnaði átaksverkefnanna, en hámarksstyrkir eru 6-8 m.kr.
Lögð er áhersla á stutt og hnitmiðuð verkefni sem geta skapað mikil verðmæti á stuttum tíma. Sjóðurinn er opinn fyrir öllum hugmyndum sem auka verðmæti sjávarfangs s.s. orkusparandi veiðiaðferðum, vistvænni veiðitækni, fullvinnslu, vörur í smásölu eða á borð neytenda, nýjum afurðum, nýrri tækni, aukinni nýtingu, matarferðamennsku, hönnun, fiskeldi, nýjum tegundum eða öðru því sem getur skila styrkþegum verðmætri afurð á stuttum tíma.
Umsækjendur eru beðnir um að vinna umsóknina miðað við nýjar leiðbeiningar sjóðsins og nota NÝTT eyðublað AVS (skjalasniðmát fyrir umsóknir). Vinsamlegast skilið umsóknum sem word skjali EKKI pdf.
Frestur til að skila inn umsóknum er 1. febrúar 2011 - Rafræn skil fyrir kl 17:00
Umsóknum skal skilað með tvennum hætti:
- Senda skal umsókn ásamt öllum fylgiskjölum, ef einhver eru, sem viðhengi til avs@avs.is fyrir kl. 17:00 þess dags sem frestur rennur út.
- Senda skal einnig undirritað eintak, sem skal í öllum atriðum vera eins og rafræna eintakið til AVS rannsóknasjóðs, Pósthólf 1188, 121 Reykjavík.
Framhaldsverkefni.
Þegar sótt er um framhaldsstyrk þá er umsækjendum bent á að nota umsókn sem skilað var inn til sjóðsins síðast og bæta við texta sem lýsir framkvæmd einstakra verkþátta og tilgreina hvað hefur verið framkvæmt af ætlaðri vinnu, hvað á eftir að gera og hverju hefur verið breytt frá fyrri áætlun. Mikilvægt er að nota annað letur eða lit til að aðgreina viðbætur frá eldri texta.
Mikilvægt er að skila inn framvinduskýrslu að auki, þar sem farið er yfir helstu niðurstöður verkefnisins fram að þeim tíma sem nýrri umsókn er skilað.

