Smáverkefni

Smáverkefni - forverkefni

Smáverkefni eða forverkefni til styttri tíma en eins árs og þar sem styrkupphæð er lægri en ein milljón. Verkefni í þessum flokki geta verið forverkefni fyrir stærri verkefni og verkefni sem styðja einstaklinga og smærri fyrirtæki í rannsóknum og þróun.

Smáverkefni verða að vera sjálfstæð verkefni, ekki hluti eða verkþáttur stærri verkefna.


Umsækjendur eru beðnir um að vinna umsóknina miðað við leiðbeiningar sjóðsins og nota eyðublað AVS sjóðsins(skjalasniðmát fyrir umsóknir). Vinsamlegast skilið umsóknum sem word skjali EKKI pdf.

Nú þurfa allir þátttakendur að undirrita umsóknir

Næsti umsóknafrestur er 1. febrúar 2011 - Rafræn skil fyrir kl 17:00

Aðrir umsóknafrestir fyrir smáverkefni á árinu 2011 verða kynntir síðar.

Umsóknum skal skilað með tvennum hætti:

  1. Senda skal umsókn ásamt öllum fylgiskjölum, ef einhver eru, sem viðhengi til avs@avs.is.
  2. Senda skal einnig undirritað eintak, sem skal í öllum atriðum vera eins og rafræna eintakið til AVS rannsóknasjóðs, Pósthólf 1188, 121 Reykjavík.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header16


Útlit síðu:

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.